Föstu dagur

September 15, 2006

Ef ég væri hestur í dag, þá væri mér alveg sama þó það sé föstudagur.

Ef ég væri hestur, þá skipti það mig engu máli að símanum mínum var stolið síðustu helgi (allir sem lesa þetta vinsamlegast sendið sms með númerinu ykkar á 8644421) og ég væri ekki búinn að fá ógeð á djúsi og partýi því ég myndi ekki vita hvað það væri. Ég væri ekki svangur því ég myndi alltaf nenna að borða – ég myndi ekki vita hvað samskipti kynjanna væri því mér væri bara sagt að ríða stundum og þá myndi ég gera það og finnast það voða gott, svo væri mér alveg sama þó það væri rigning úti því ég þekkti lítið annað en vont veður, því ég er á íslandi.

Aftur á móti ef ég væri hestur þá gæti ég ekki hlustað á nýju Grizzly Bear plötuna, Yellow House, og væri ekki að hlusta á svona ógeðslega gott lag með Stephan Bodzin og væri ekki að fara á Tiefshwartz tónleika í kvöld. Þannig að þetta kemur eiginlega svona út á sléttu… hestur, maður.. skiptir voða litlu máli.

En hér eru myndir af mér og fjórum strákum í skólanum með kínaaugu

death.jpg

Leave a Reply